miðvikudagur, 22. ágúst 2007

Lag í spilun: Smith - Baby It's You

Eitthvað helvítis skruðningadraslhljóð fór að heyrast í plötuspilarahátölurunum fyrir ca. 2 dögum. Sérstaklega ömurlegt af því að ég er komin með svona "easy-to-reach" kassa fyrir plöturnar og því farin að hlusta aðeins meira á þær.
Mamma heyrði þetta hljóð og sagði að hátalararnir væru pottó sprungnir... ég fór því í snattferðinni minni í dag í Góða hirðinn. Ekkert þar. Á leið minni að kaupa flakkara sá ég síðan Sjónvarpsmiðstöðina og ákvað að athuga hvað hátalarar kostuðu þar. JBL, 30.000kr, ótrúlega góðir (gaurinn leyfði mér að hlusta). Skellti mér á þá.

Kom heim, tengdi þá og viti menn! Ennþá þetta skruðningshljóð. Sjaldan verið jafn svekkt á ævinni... fór og skilaði þeim og fékk peninginn aftur.

Sit hins vegar uppi með annað hvort bilaðan magnara (líklegast) eða bilaðan plötuspilara (hann er reyndar í einhverju fokki núna, nálin fer bara þvert yfir plötuna nema ég þrýsti ofan á lokið).

Ömurleeegt. Maðurinn sem afgreiddi mig í annað skiptið sagði að út frá lýsingunni minni hljómaði eins og rásin í magnaranum væri biluð og þá borgaði sig ekki að láta laga hann.

Herbergisbreytingu minni lýkur ekki fyrr en þetta vesen er komið í lag... og það er óþægilegt að vera í hálfkláruðu herbergi og geta ekkert í málunum gert.

Mamma ætlaði að biðja Mannsa eða Ægi frænda um að kíkja á kút magnara... Opnaði hann áðan... lengra kemst ég ekki á minni raftækjavisku.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ skvís.
Kíktu á www.blog.central.is/engjaskoli86 og segðu hvað þér finnst :)