fimmtudagur, 23. ágúst 2007

Lag í spilun: Korn - K@#%!

Fór að leita mér að dvergvarasölvum í dag. Fann í Select við hliðina á Smáralind og ákvað, eftir að hafa keypt 6 stykki, að skreppa inn í Smáralind. Mátaði nokkuð nettar buxur í Levi's... frekar dýrar...en ég hafði engar aðrar séð sem mig langaði í - í allri Smáralind.
Eru mjög svipaðar þessum:
Síðan fór ég í Kringluna og fann þessar í Deres. Er mjög hrifin af þeim. En þær eru svo helvíti dýrar :S Veit ekki hvort ég tími því að kaupa þær.
Síðan fór ég í Kaupfélagið, bara upp á skófíknina... mátaði skó og "englakór". Háhælaðir og SJÚKlega þægilegir.
Keypti þá silfraða.
Varasalvar, meik og háhælaðir skór. Engar buxur.

Engin ummæli: