miðvikudagur, 5. desember 2007

Lag í spilun: Meshuggah - New Millenium Cyanide Christ

Umræðuefni: Munnlegt storkubergspróf
Ég dró "Lotukerfið og bergfræði" ... og drullaði upp á bak. Sæmundur sá einhverjar aumur á mér og fannst að ég ætti að draga annan miða. "Steindir í storkubergi á Íslandi". Taldi upp steindir í storkubergi á Íslandi, en byrjaði síðan að drulla upp á bak þegar þeir báðu mig um að teikna þríhyrninga....
Ég stóð eins og illa gerður hlutur og babblaði eitthvað bull. Horfði síðan á þá og "...eða er ég að rugla?"
Botnaði Shitstorm með Strapping Young Lad á leiðinni heim....hefði líklegast keyrt hraðar en ég gerði, hefði umferðin ekki verið svona þung.
Henti draslinu á rúmið og fór upp að horfa á drasl mynd á Bíórásinni.
Sit hérna....rotin að innan....og hlusta á Meshuggah of hátt fyrir velferð eyrna minna.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú hefur áreiðanlega massað þetta. Ég er ekki enn byrjuð á jarðsögunni, það var miklu skemmtilegra að fara í búðir og eyða smá pening.

Nafnlaus sagði...

Haha voðalega var hann Sæmi góður, sérstaklega af því að þetta efni er hell, ég ætti að vita það, reyndi að skrifa um það :) Mér gekk svona álíka vel...svitnaði bara og gat varla teiknað upp AFM án hjálpar :( (Fékk aðalefni og steindafylki...)