föstudagur, 16. nóvember 2007

Lag í spilun: Ekkert

Ég og Angus (Agnes) vorum að einhverfast áðan... mældum "the hyper extension" handleggs míns. Komumst að því að það eru 195° ... ekki 180° eins og á meðal manneskju. Hérna er mynd til þess að sýna þetta *flissar yfir hálfvitaskapnum*.
Séð frá hlið... (tékkið á upphandleggsvöðvanum :p)

Einnig er ég með svona ílanga sprungu eftir olnboganum eins og sést hérna að ofan :p
Að lokum verð ég að nefna, að eftir mjög vísindalega mælingu (með reglustiku) þá komst ég að því að hárið sem að reis mest, þegar ég fékk gæsahúð um daginn, var 1,6 cm á lengd.
Vei....gaman.... *fliss*

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

nei sko, mér sýnist þú hafa orðið fyrir áhrifum frá artista sem notar mikið einhverfuflipp. fyndið hvernig flipp hljómar ef maður skrifað það vitlaust inn í tölvuna td fliðð, flioo, flill, dlipp, glipp, rlipð, flipð....steikt

Nafnlaus sagði...

ps. í framtíðinni mun Comment Name-ið mitt vera Khozair Jozir

yfir og út

Nafnlaus sagði...

Ertu að tala um sjálfa þig? *tíhí*

Já, dlipp hljómar einstaklega kjánalega :p

Og já, líst vel á að þú haldir heiðri Khozair Jozirs uppi :) He still lives! In out hearts!