Djöfull massaði ég djammið í gær....Vísó í Samsýn ... stutt og laggóð kynning ... stuð. Síðan Red Chili, þar sem ég var næstum því sofnuð. Ílengdumst þar... fólk þurfti ofboðslega mikið að tala :D Mig langaði bara að komast til Keflavíkur og byrja að drekka (ég var bílstjórinn). Þegar þangað var komið, rúmlega 22, blandaði ég mér strax áfengi ... 3 klst seinna var ég orðin of drukkin til þess að fara með Bylgju og Minney niður í bæ. Anna Stella var of þreytt til að fara með og sat í rúminu og var á MSN og ég áfengisdauð við hliðina.Þar með lauk djammkvöldinu mínu.
2 ummæli:
pant ég líka hafa verið á djamminu í gær...
pant ég hafa drukkið of mikið í boði VÍS, elska vís...
pant ég vera þunn núna...
pant ég hafa fengið króníska munnræpu...
pant ég hafa drepið símann minn áfengisdauða...
úbbs
hahaha :D
góður, félagi!
Skrifa ummæli