þriðjudagur, 4. september 2007

Lag í spilun: Ellý Vilhjálmsdóttir - Ég vil fara upp í sveit

Í tilefni af því að ég varð að velja barnamynd af mér til að setja inn á Fjallssíðuna skannaði ég bara nokkrar inn á tölvuna... ætla að setja nokkrar vel valdar hérna inn á :Þ

Þessi hérna er úr splattermyndinni Grindglithn (ísl.: Grindargliðnun) sem Peter Jackson leikstýrði seint á 9. áratugnum.

Ein að kafna í kinnunum á sér. Og ekki segja að hárbandið sé ekki töff!

Hér höfum við forsíðu Pedophile Weekly 42. viku ársins 1986.


"All I want for Christmas is my two [upper] front teeth"

Þarna er Hrannar frændi nýbúinn að hugga mig eftir að ég lenti í hörku karateslag [sjá karatebúninginn] við eitthvert gerpi á Vopnó. Fékk sár undir nefið en drengurinn sem dissaði mig er grænmeti í dag.

Jólin 1987 á Vopnafirði.


Villi Rabbi frændi dró eitthvert lítið skrímsli úr snjónum árið 1987. Skrímslið var skírt Marín.

Anna Ósk frænka klippti mig þarna þegar ég var eitthvað 1-2 ára. Í kjölfarið ákvað hún að riffla á mér hárið. Síðan sýndi hún mér útkomuna í speglinum....

Ein með massífa timburmenn...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

það er nokkð ljóst að marin er búin að kaupa sér skanna. Og ekki nóg með það, er hún einnig búin að gefa umheiminum tækifæri til að líta í einkasafnið og sjá nokkrar af aðal ljósmyndunum frá árum áður. þú rokkar.

Nafnlaus sagði...

Noooo, you rock!

(og fyrsta myndin :Þ)

Nafnlaus sagði...

Elska myndirnar, litla "skrímslið" mitt

Villi Rabbi Frændi!