mánudagur, 27. ágúst 2007

Lag í spilun: Accept - Midnight Highway

Ein í annarlegu ástandi í nótt :Þ

Fer svo sem ekkert nánar út í það...

...en ég, hins vegar, svaf yfir mig í fyrsta tíma í morgun. Sá á jarðfræðisíðunni í nótt að skólinn átti að byrja í dag, ekki á morgun. Svaf yfir mig til 10:19. Man ekki eftir því að hafa slökkt á báðum klukkunum kl. 8:40.

Loftur er svalastur í heiminum! Elska þennan bíl... þó svo að ég þurfi strax að punga út 12.000kr fyrir nýju framröri í pústkerfið.

Þarf einhvern veginn að taka græjurnar úr Dæjanum og setja gömlu í aftur. Síðan þarf ég að setja minn geislaspilara í Loft - hinn er frekar slappur; 4*45W, spilar ekki MP3 og hefur ekkert Aux-Input. Síðan, þegar ég nenni að koma mér í það, ætla ég að setja hátalarana í skottið á Lofti.

Ein skólabókin sem ég pantaði á Amazon er strax komin! Invertebrate Palaeontology and Evolution. Mega.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Marúúún fævvv.... hvað ertu að gera á laugardagskvöldið? geim í kaffihús eða bara plein simpúl sóðalegt djamm? eða bara bæði...:p

Nafnlaus sagði...

Ég er geim í bæði, kona góð! En samt eftir að hafa teki Jam (breskir þættir uppfullir af svörtum húmor) maraþon um daginn.

Nafnlaus sagði...

hahaha þú ert best... þetter deit..! verðum í bandi í vikunni... hlakka til að sjá þig snúllurassgat..!!!

Nafnlaus sagði...

Ok... klukkan er 3 and I can´t stop thinking of you. Puke right... yeah. Allavega... þetta er bara smá comment ætlað til að... til að... ok satt að segja veit ég ekki hvað ætlunin er. Vona að þú sofir ekki yfir þig á morgun. Ég vona að ég sofi ekki yfir mig á morgun heldur. Ég vona líka að ég fái lítin hund, tvo seli og síguna konu til að singja afmælissöngin fyrir mig á morgun (ég á samt ekki afmæli á morgun, vona að það verði ekki vesen). Var ég búin að segja að blond on blond er geðveikur diskur... hann er það.

Stafsetningavillur? Bring it!

Nafnlaus sagði...

"veit ég ekki hvER ætlunin er"
"´lítinN hund"
"sígAuna"
"sYngja"
"afmælissönginN"
"búinN"
"BlondE on BlondE"

Ég hef alltaf átt í erfiðleikum með "morgun"... tvö enn eða eitt... dunno.

Ég hef lokið mér af :Þ

Nafnlaus sagði...

"veit ég ekki hvER ætlunin er"
"´lítinN hund"
"sígAuna"
"sYngja"
"afmælissönginN"
"búinN"
"BlondE on BlondE"

Ég hef alltaf átt í erfiðleikum með "morgun"... tvö enn eða eitt... dunno.

Ég hef lokið mér af :Þ

Nafnlaus sagði...

Úff.. tvisvar. Engin miskun.