mánudagur, 2. júlí 2007

Lag í spilun: Smashing Pumpkins - Perfect

Ég fór á


með Þorgils, í boði Þorgils, í gær.

Fór inn á Nasa klædd skelinni minni og var í henni meðan Severed Crotch spiluðu, þrátt fyrir það að þeir hefðu alls ekki verið slæmir. Þótti skondið að horfa yfir (var á öðrum pallinum) samtaka hár þeytast upp og niður. Sá einnig vel yfir moss pittinn og fannst það líka nokkuð kómískt.

Þegar Momentum byrjuðu að spila var ég byrjuð að klæða mig úr skelinni minni og var lúmskt farin að dilla mér við tónlistina - það var samt sjúklega erfitt að finna taktinn hjá þeim.

Þegar Forgarður helvítis byrjuðu stökk Þorgils niður á gólf, Heiða (Unun-Heiða) missti sig við hliðina á mér, smitaði mig og ég afklæddist skelinni minni og fór að slamma. Söngvari Forgarðs helvítis var ótrúlega skemmtilegur :)

Fór niður á gólf þegar Cannibal Corpse byrjuðu og hélt mínu striki :Þ Leit ábyggilega gífurlega kjánalega út, einhver lítill dvergur í kjól yfir gammosíur úti í horni að slamma...

Þegar farið var að líða undir lok tóku Cannibal Corpse Pit of Zombies og það varð allt brjálað í moss pittinum. Ég tók eftir gaur sem hafði það fyrir leik að kýla annað fólk í pittinum. Í þriðja skiptið hitti hann rangan gaur á kjammann - hann sneri sér við, tók í hálsmálið á honum og ruddi honum upp að handriðinu - ég rétt náði að smeygja mér undan en ekki mikið meir. Fékk hluta höggsins, sem flaug í fésið á kýli-gaurnum, í ennið á mér :D Sjúklega gaman!

Síðan fékk Þorgils að heyra mig öskra smá... veit ekki hvort öskrið hann fékk að heyra. Djúpa karlmannlega eða kvenlega :Þ Þau eru bæði jafn kjánaleg hvort eð er...

Eníhú, þetta var suddalega gaman.... og djöfull var maður sveittur þegar maður kom út. Sussubía.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

þú ert svo fyndin...:P

og heyrðu það er ógeðslega köngulóarbú utan á glugganum mínum.... varð hugsað til þín þegar ég sá það.... köngulóarfóbían alveg að fara með mig núna sko...:$:$:$

Nafnlaus sagði...

Þú verður að myrða köngulærnar viljirðu ekki faraldur... :O

Nafnlaus sagði...

ég massaði þetta með hárspreyi og vatni.... vonum bara að hún sé dauð.... (8)