föstudagur, 14. desember 2007

Lag í spilun: Mr. Bungle - Egg

Fucked up draumur í nótt :S
Ég, ásamt hóp af fólki - bekkurinn eða eitthvað, við gljúfursbrún einhvers staðar. Umhverfið var voðalega Miklagjúfurslegt. Háflgerð brú með fram brúninni, yfir gljúfrinu.
Verklegi storkubergskennarinn okkar skipaði okkur að fara á brúna, hann með, og brjóta hana svo við (ekki hann) myndum detta niður og drepast. Við vorum bundin um hendurnar. Það gekk eitthvað brösulega að brjóta hana.
Einhver úr hópnum bendir honum á að hinum megin í gljúfrinu sé fólk, sem hefði sloppið. Hann stekkur niður (allt í einu styttra niður en áður), og er í Indiana Jones fötum á leiðinni niður.
Ég veit ekki hvernig það æxlast, en ég fer með honum. Á leiðinni er hann í ósköp venjulegum fötum - og hausinn er alltaf að detta af honum. Ég hleyp á eftir honum og læt hann fá hann aftur. Á meðan er búkurinn röltandi um, án þess að vita hvert hann er að fara.
Á leiðinni verðum við ágætis vinir... ólíkt því sem verið hefur í haust :p
Restin er tiltölulega gleymd, veit ekki hvernig fór með fólkið hinum megin í gljúfrinu.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Haha....snilldar draumur, vonandi að við komumst öll lífs af eftir þennan áfanga :)

Nafnlaus sagði...

Já, ég vona það :P

Nafnlaus sagði...

jámm draumar eru skrítinir.. vildi bara segja hæ..

Nafnlaus sagði...

Hæ, Ríkey! :p