*fliss*Ætli Pólverjarnir hafi fengið ógeð á Bobi.... hann var víst illa liðinn.
Nei nei, það er alveg hellingur af fyrirtækjum þarna upp frá og það er ekki einu sinni tekið fram í fréttinni hvort um Íslendinga eða útlendinga sé að ræða.Bara að ímynda mér eitthvað bull......er í steingervingafræði og er mega flökurt. Vona að ég sé ekki að fá ælupest :S

7 ummæli:
Já, þér hlítur að hafa verið flökurt....ég fór ekki í neina steindafræði í dag.
Æji, andskotinn! Sýnir fram á hversu skýrt ég var að hugsa þarna :D
*breytir*
Steindafræði, storkuberg, setlagafræði, steingervingafræði,....saga, ekki furða að maður ruglist aðeins ;)
Ég ruglast alltaf, súr í hausnum eður ei :p
Essin fjögur *vappar um og gerir haushnykkinn eins og þau gerðu í Essin þrjú*
næsta önn hjá mér einkennist ekki af S-um lengur heldur E-um. Eðlisfræði, efnafræði, eldfjallafræði...
Úúú, æðislegt :S :p
For Annas eyes only: S-E....hummm...ætli þetta sé stefna; suðaustur...kannski þú flytjir eitthvað til Austur-Evrópu eða kannski að heiti reiturinn fari þangað og við með. Kannski er þetta skammstöfun, Sigurður Einarsson, Stefán Elíasson, Sigmundur Ernir, hver veit! Ég myndi passa mig á öllu sem inniheldur S og E í framtíðinni...þetta er áreiðanlega samsæri gegn þér og jafnvel öllum Íslendingum. (Ég er að reyna að læra, miklu skemmtilegra að búa til einhver samsæris mál)
Skrifa ummæli