þriðjudagur, 8. maí 2007

Lag í spilun: Ekkert

Fórum á Sægreifann áðan að fá okkur heimsins bestu humarsúpu.
Fórnaði trylltu stæði (alveg upp við hurðina) af því að ég varð að sanna fyrir Önnu Stellu að bíllinn minn er EKKI RUSL! *ull*
Allavega, þegar við komum til baka sá ég stæði tveimur stæðum frá hinu upprunalega og skellti mér í það.
Pía, rétt hjá á jeppa, sem var að bakka eitthvað varð tryllt - bibaði og benti mér á að GERA SVO VEL AÐ DRULLA MÉR ÚR STÆÐINU SEM HÚN VAR BÚIN AÐ EIGNA SÉR.
Afsakið hlé, en það leit bara ENGAN vegin þannig út að hún væri að fara að bakka í þetta blessaða stæði.
En, sá vægir er vitið hefur meira og við skutumst í burtu.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

það er kúl að stela stæðum af öðrum... og það eru bara plebbar sem bakka í stæði...;)

Nafnlaus sagði...

Úff, er í Árnagarði (HÍ-hús) núna - að fara í próf á eftir - og ég hef aldrei á ævi minni séð jafn marga plebba.