Mamma sá mig skoða bíla á bílasölum (á netinu) um daginn og ég hef þurft að súpa seyðið af því."En þessi hérna?", sagði hún og benti á Nissan Micra í blaðinu.
Með fyrirlitningu svaraði ég: "Mamma, þetta er kellingabíll. Þú mátt eiga hann."Síðan kom ég heim áðan og mamma náði tali af mér."Ég fann hinn fullkomna bíl fyrir þig, Marín."
Ég horfði á hana með vanþóknun og pirringi. "Þetta er ábyggilega ljótur, lítill kellingabíll"
Mamma svaraði kotroskin, "2000 árgerð...."
"Mamma! Ég vil ekki nýja bíla!"
"Leimmér að klára! Sumar- og vetrardekk, geislaspilari, 13.000kr á mánuði...."
"Þú veist hvað ég hata svona, mamma! Að skulda."
"Það er reyndar eitthvað smá áhvílandi. Byrjar á D"
"Ertu á lyfjum, mamma?! Nýr Daihatsu er það hallærislegasta sem ég veit um."
"T"
"Daihatsu Terios! Ertu gengin af vitinu. Ef ég myndi keyra um á þessum bíl myndi ég drukkna í minni eigin ælu. Hvað varstu að pæla, kona. Ég á ljótum jepplingi. OJ.", sagði ég og hló að vitleysunni í henni.
"En Marín, þú værir fullkomin á svona bíl"
"Mamma, ég segi það og skrifa, drukkna í minni eigin ælu!"Síðan fór ég í sturtu.
Alveg makalaust hvað fólk er að reyna að ráðskast með mig þessa dagana. Dæinn virkar og á meðan svo er ætla ég ekki að pæla í neinu öðru. Ég var bara að leika mér að skoða aðra bíla á netinu. Og þetta "ráðskast" dæmi á líka við um aðra hluti. Ég má eyða tíma með hvaða liði sem mér sýnist án þess að fólk fari á fkn taugum!
Öllu má nú ofgera, góða fólk, öllu má nú ofgera.Pant vera pirruð.
marín. þú rokkar.
SvaraEyðanafnlaus""
SvaraEyðarógleg að vera reið og pirruð
Þetta fylgir víst því að búa hjá foreldrunum.... eintóm gleði og hamingja... hóst hóst...;) bara mjög svo eðlilegt að pirrast af svona hlutum...;)
SvaraEyðaHvað er eiginlega málið að skrifa ekki undir nafni??? Þú, númer 2, ég hef allan rétt á að vera pirruð. Fólk hefur farið í taugarnar á mér upp á síðkastið.
SvaraEyðaUmm....fyrirgefðu ef þú ert pirruð út í mig...... :(
SvaraEyðaVissi reyndar að þetta væri þú, en´ég hef ekki hugmynd um hver númer 2 er :S
SvaraEyða